Þroskaþjálfi í vaktavinnu á Lautarvegi

Þroskaþjálfi í vaktavinnu á Lautarvegi

Ás styrktarfélag leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að starfa á heimili á Lautarvegi, í Reykjavík. Sex íbúðir eru í húsinu auk starfsmannaaðstöðu.

Ás styrktarfélag óskar eftir þroskaþjálfa í vaktavinnu.

Í boði er 80 % starfshlutfall á morgun-, kvöld- og helgarvaktir eða eftir samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar íbúa til sjálfshjálpar og stuðlar að þátttöku þeirra í samfélaginu
  • Veitir íbúum stuðning og ráðgjöf í daglegu lífi
  • Vinnur þjónustuáætlanir með íbúum sem byggðar eru á óskum íbúa og faglegu mati, tryggir að áætlunum sé fylgt eftir.
  • Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa
  • Tryggir að sjálfsákvörðunarréttur íbúa sé virtur og að veitt sé einstaklingsmiðuð þjónusta

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsréttindi frá Landlæknisembættinu
  • Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmyndfræði
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi ásamt hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum
  • Sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.

Vegna samsetningar í starfsmannahópnum hvetjum við konur sérstaklega til að sækja um.

Stöðurnar eru lausar frá og með byrjun desember og nánari upplýsingar veitir Ásdís Hallgrímsdóttir forstöðumaður í gegnum netfangið asdis@styrktarfelag.is

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.

Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.