Þroskaþjálfinn, tímarit ÞÍ er gefinn út í dag á afmælisdegi félagsins.
18.05.2026
Þroskaþjálfafélag Íslands var stofnað 18. maí 1965 og fagnar því 61 árs afmæli í dag. Í tilefni dagsins er okkur ánægja að segja frá því að Þroskaþjálfinn kemur út í dag á heimasíðu félagsins. Þetta tölublað er góð blanda af fræðilegu og fréttatengdu efni, auk léttara og aðgengilegs efnis.
Jafnframt viljum við minna á að aðalfundur ÞÍ verður haldinn 28. maí næstkomandi og hvetjum við félagsfólk eindregið til að mæta á fundinn. Sjá upplýsingar um fundinn hér
