Aðalfundur ÞÍ verður haldinn fimmtudaginn 28. maí

Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. maí klukkan17:00, í Borgartúni 27 á 2. hæð. Einnig verður boðið upp á að taka þátt á fjarfundi í gegnum teams.
Nauðsynlegt er að skrá sig hvort sem þú mætir í Borgartún eða skráir þig á fjarfund.

Skráning fer fram hér. Fjarfundarboð verður sent á skráð netfang fyrir hádegi á aðalfundardegi.


Hér er tengill á tillögur kjörnefndar í stjórn, ráð og nefndir. Önnur fundargögn munu birtast á sama tengli þegar á líður.

Lögboðin dagskrá er eftirfarandi:

a. Kosnir starfsmenn fundarins

b. Formaður leggur fram skýrslu stjórnar

c. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess

d. Lagabreytingar

e. Kosning í stjórn, nefndir og ráð

f. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara

g. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöld ákveðin

h. Önnur mál

   i. Kynning á könnun á ofbeldi sem félagsfólk ÞÍ hefur orðið fyrir í starfi

  ii. Kynning á stefnumótun Þroskaþjálfafélags Íslands til 2035

 

Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og notalegt spjall á staðnum.
Með kveðju, stjórn ÞÍ