Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands fimmtudaginn 28. maí 2026

Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands

Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands var vel sóttur, bæði á stað fundi sem í fjarfundi. Þar fóru fram almenn aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.Gögnin eru aðgengileg hér

Á fundinum voru kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um ofbeldi í starfi þroskaþjálfa. Niðurstöðurnar sýna að verulegur hluti þroskaþjálfa hefur orðið fyrir ofbeldi í starfi og að staðan hafi lítið batnað á síðasta áratug. Könnunin er mikilvægur grunnur fyrir áframhaldandi hagsmunabaráttu félagsins fyrir öruggara starfsumhverfi og bættri mönnun.

Einnig var kynnt ný stefna félagsins til ársins 2035. Hún leggur áherslu á eflingu fagmennsku og stéttarvitundar, bætt kjör og aukin áhrif þroskaþjálfa á stefnumótun og þróun þjónustu. Stefnan verður leiðarljós í starfi félagsins á komandi árum.

Um leið og félagið þakkar fráfarandi þroskaþjálfum fyrir afar vel unnin störf í stjórn, ráðum og nefndum býður það nýja þroskaþjálfa velkomna til starfa.