Viðurkenning Þroskahjálpar veitt fyrir framúrskarandi lokaverkefni BA nemenda í þroskaþjálfafræði
Í tilefni útskriftar BA-nemenda í þroskaþjálfafræði bauð Þroskaþjálfafélag Íslands til fagnaðar föstudaginn 12. júní. Þar var m.a. veitt viðurkenning Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir framúrskarandi hagnýtt lokaverkefni.
Í valnefnd sátu fulltrúar Háskóla Íslands, Þroskaþjálfafélags Íslands og Þroskahjálpar.
Tvö sterk verkefni voru tilnefnd og fjölluðu þau bæði um stuðning við fatlað fólk með áherslu á áfallamiðaða nálgun. Verkefnin endurspegla vel vaxandi áherslu á mikilvægi slíkrar nálgunar og hvernig hún getur stuðlað að auknu öryggi og valdeflingu þjónustunotenda.
Annað verkefnið, eftir Emmu Þöllu Hilmarsdóttur, fjallaði um áfallamiðaða nálgun í búsetuúrræðum og einkenndist af sterkum fræðilegum grunni og hagnýtu framlagi í formi aðgengilegs fræðsluefnis fyrir fatlað fólk.
Hitt verkefnið, eftir Erlu Kolbrúnardóttur og Huldu Margréti Eggertsdóttur, fjallaði um stöðu einhverfra einstaklinga með áfengis- og vímuefnavanda og aðkomu þroskaþjálfa. Í því er bent á skort á aðlöguðum úrræðum og dregin upp skýr mynd af kerfislægum hindrunum í þjónustu. Verkefninu fylgir jafnframt hlaðvarp þar sem viðmælendur varpa ljósi á reynslu og áskoranir í þessum málaflokki, sem gerir niðurstöðurnar enn aðgengilegri og undirstrikar hagnýtt gildi verkefnisins.
Valnefnd átti erfitt með að velja á milli tveggja verðugra verkefna, en að lokum varð niðurstaðan sú að verkefni Erlu og Huldu hlyti viðurkenninguna að þessu sinni.
Leiðbeinandi verkefnisins var Davíð Guðmundur Kristinsson.
Þroskaþjálfafélag Íslands óskar þeim innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.


