Lækjarskóli Hafnarfirði auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf haustið 2025. 

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna með nemendum með þroskafrávik.
  • Gera áætlanir, sinna þjálfun, vinna með félagsfærni, aðlaga námsefni og námsaðstæður í samvinnu við kennara og deildarstjóra.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna með nemendum í sérdeild og almennu skólaumhverfi.
  • Vinna að þróun skólastarfs ásamt öðrum starfsmönnum í skólanum.
  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrár í samstarfi við kennara og deildarstjóra og fylgja henni eftir.
  • Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á svið þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að vinna sem slíkur (starfsleyfi fylgi umsókn).
  • Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með þroskahömlun kostur.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu..

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Guðbjörgu Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra, dogg@laekjarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2025

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélag íslands.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.