Forstöðumaður Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur

Velferðarsvið Akureyrarbæjar auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns Plastiðjunnar Bjarg – Iðjulundur (PBI). Um er að ræða ótímabundið 100% dagvinnustarf.

Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um málefni aldraðra.

PBI er starfsþjálfunar og starfsendurhæfingar vinnustaður. Markmið staðarins er að efla þátttöku fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði, auka vinnuhæfni í starfsþjálfun og starfsendurhæfingu með því að skapa þeim atvinnutækifæri við hæfi.

Forstöðumaður PBI stýrir starfseminni, þjónustu, mannauð og fjárhag. Hann ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem undir hann heyrir, leiðir þróun og umbætur innan starfseminnar og stuðlar að framförum og árangri.

Helstu verkefni eru:

  • Hefur yfirsýn yfir þá þjónustu sem veitt er, deilir út verkefnum til starfsmanna og dreifir vinnuálagi á milli þeirra.
  • Hefur eftirlit með því að öll framkvæmd sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, reglna og samþykkta Akureyrarbæjar.
  • Metur stöðu og getu umsækjenda um vinnu og virkni í samstarfi við deildarstjóra.
  • Skipuleggur þjónustu við notendur og gerir virkni- og vinnusamninga við notendur og einstaklingsáætlun í samráði við deildarstjóra og ber ábyrgð á að þeim sé fylgt eftir.
  • Vinnur að þróun þjónustunnar út frá þörfum hverju sinn.
  • Hefur forystu um þróunarverkefni, fræðslu og faglega umræðu.
  • Annast gerð fjárhagsáætlunar í samstarfi við rekstrarstjóra.
  • Setur fram starfsáætlun og veitir verkefnum hennar eftirfylgni.
  • Sinnir reglulegu fjárhagslegu eftirliti varðandi útgjaldaliði þjónustunnar.
  • Sinnir mannauðsstjórnun í samræmi við mannauðsstefnu, starfsmannaferli, verkferla og leiðbeiningar þar að lútandi.
  • Heldur utan um upplýsingar og gögn sem varða starfsemina og/eða verða til í starfseminni og miðlar upplýsingum um starfsemina til yfirmanna og samstarfsaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, eða sambærilega háskólamenntunun sem nýtist í starfi.
  • Starfið krefst 3-5 ára reynslu af starfi í velferðarþjónustu.
  • Þekking á lögum og reglugerðum um velferðar- og virknitengda þjónustu.
  • Reynsla af skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni velferðarmála.
  • Reynsla af teymisstjórnun er kostur.
  • Þekking á árangursríkum leiðum mannauðsstjórnunar.
  • Áhugi og skilningur á þróun velferðarþjónustu og þjónustubreytingum.
  • Samskiptafærni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
  • Færni í ritun texta og framsetningu upplýsinga.
  • Góð almenn tölvufærni.
  • Drifkraftur og lausnamiðuð nálgun.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti ásamt enskukunnáttu.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs í síma 460-1492 eða netfang karolina@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Sjá auglýsingu hér; https://jobs.50skills.com/akureyri/is/40827

Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2026.