Forstöðumaður í íbúðarkjarna í Brekkuási Viltu taka þátt í uppbyggingu á nýrri búsetu í Garðabæ?

Óskað er eftir forstöðumanni til starfa á heimili fólks með fötlun í nýjum íbúðakjarna að Brekkuási í Garðabæ. Um er að ræða 100% starf.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknafrestur er til 09. september, 2023.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að þjónusta og starfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, stefnu og verkferla Áss styrktarfélags
  • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri heimilisins, stjórnun og starfsmannahaldi
  • Að vinna eftir innri gæðaviðmiðum og kröfulýsingu heimilisins
  • Einkafjármunir íbúa og hússjóður samkvæmt umboði
  • Meðferð gagna og upplýsinga sé í samræmi við lög sem þeim tilheyra
  • Innra faglegt starf og þjónusta við íbúa
  • Að vinna einstaklingsmiðaðar þjónustuáætlanir með íbúum
  • Samstarf við íbúa, aðstandendur og aðra samstarfsaðila

Hæfnikröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi
  • Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla
  • Starfið krefst þekkingar á málefnum fatlaðs fólks og rík áhersla er lögð á hugmyndafræði og fagleg vinnubrögð
  • Reynsla af starfsmannahaldi og stjórnun er nauðsynleg
  • Góð samskiptafærni í töluðu og rituðu máli og sjálfstæð vinnubrögð
  • Krefst tölvufærni ásamt góðrar íslensku og enskukunnáttu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og leiðtogafærni

 

Umsækjandi þarf að geta tekið virkan þátt í innra starfi félagsins og haft stefnu þess og góða starfshætti að leiðarljósi. Starfið veitir tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum í samvinnu við góðan starfsmannahóp.

Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir í síma 414-0500 á virkum dögum.

Atvinnuumsókn sendist á erna@styrktarfelag.is

Upplýsingar um félagið má finna á www.styrktarfelag.is

 

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.

Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012.

 

Við hvetjum áhugasama að sækja um.