Þroskaþjálfi í vaktavinnu í Langagerði

Ás styrktarfélag leitar að þroskaþjálfa til að starfa á heimili í Langagerði, í Reykjavík. Fimm íbúðir eru í húsinu auk starfsmannaaðstöðu.

Starfshlutfallið er 90%, allar tegundir vakta koma til greina.

Staðan er laus eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á fagleglegu starfi, miðlar þekkingu til annara starfsmanna og veitir þeim stuðning.
  • Aðstoðar íbúa til sjálfshjálpar og stuðlar að þátttöku þeirra í samfélaginu
  • Aðstoðar og styður íbúa við athafnir daglegs lífs og við heimilishald
  • Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa
  • Fylgist með andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoðar þá við heilsufarslega þætti
  • Setur sig inn í tjáningarform eða sérstakar aðstæður íbúa.
  • Tryggir að sjálfsákvörðunarréttur íbúa sé virtur og að veitt sé einstaklingsmiðuð þjónustu

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi
  • Þekkingar á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi hugmyndfræði.
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta
  • Hreint sakarvottorð. Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að skila inn sakarvottorði (af island.is) ef af ráðningu verður. Stjórnandi biður um þau gögn fyrir atvinnuviðtal.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktarfélags.

Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt samkvæmt ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Nánari upplýsingar veitir Stína Magga í síma 551-4478 eða á netfangið margret@styrktarfelag.is