Þroskaþjálfi óskast til starfa við leikskólann Sæborg

Þroskaþjálfi óskast til starfa við leikskólann Sæborg, Starhaga 11, 107 Reykjavík.
Unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og áhersla lögð á skapandi starf með börnum
og flæði í leik. Sæborg er fjögurra deilda leikskóli.


Hlunnindi í starfi eru frítt fæði, sund- og menningarkort, heilsuræktarstyrkur og
samgöngusamningur.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.


Helstu verkefni og ábyrgð
• Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og veita barni þjálfun og stuðning í samvinnu
við sérkennslustjóra og annað starfsfólk á deildinni.
• Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.


Hæfniskröfur
• Þroskaþjálfamenntun
• Reynsla af þjálfun æskileg
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
• Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
• Hreint sakavottorð.


Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða þjálfun fyrir þriggja ára barn sem er að byrja hjá okkur í Sæborg. Nú þegar
starfa tveir þroskaþjálfar í leikskólanum við önnur verkefni en við þurfum nauðsynlega á
liðsauka að halda.


Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall 100% eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hafdís Svansdóttir leikskólastjóri í síma 4113471 eða í
gegnum netfangið hafdis.svansdottir@reykjavik.is
og/eða Helga Jónína Sigurjónsdóttir, sérkennslustjóri í gegnum netfangið
helga.jonina.sigurjonsdottir@reykjavik.is