NNDR 16yh Research Conference - Nordic Network on Disability Research

Nordic Network Disability Resaerch verður haldin í Reykjavík dagana 10. - 12. maí 2023.

Félag um fötlunarrannsóknir tilkynnir 16. ráðstefnu Nordic Network on Disability Research (NNDR) sem verður haldin á Grand Hotel Reykjavík 10.-12. maí nk. Á ráðstefnunni halda alþjóðlegir sérfræðingar í fötlunarfræði aðalfyrirlestra og meðal þeirra er Theresia Degener, prófessor í fötlunarfræði við Bochum Center for Disability Studies (Þýskalandi) en hún hefur um árabil verið formaður eftirlitsnefndar við samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Aðrir aðalfyrirlesarar eru Lydia X. Z. Brown, aktívisti og adjúnkt í fötlunarfræði við Georgetown University (BNA) og Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um aðalfyrirlesara má finna á nndr2023.is. Auk aðalfyrirlestra verða um 500 kynningar á rannsóknum í málstofum um viðfangsefni sem tengjast ýmsum sviðum í lífi fatlaðs fólks, svo sem menntun, atvinnu, sjálfstæðri búsetu, réttindagæslu, fjölskyldulífi, sjálfræði, birtingarmyndir fötlunar í samfélaginu, o.fl.

Félag um fötlunarrannsóknir hefur í undirbúningsvinnu sinni í fyrsta skipti í sögu ráðstefnu NNDR lagt áherslu á þátttöku fræðafólks og annarra aðila á sviði rannsókna um Döff og heyrnarlaust fólk. Einn aðalfyrirlesaranna er Hilde Haualand en hún er fyrsti Döff einstaklingur til að gegna stöðu prófessors í Noregi (NTNU, Trondheim). Auk þess verður fjöldi erinda í málstofum sem fjalla um rannsóknir á þessu sviði.

Ráðstefna NNDR 10.-12. maí nk. verður stærsta fötlunarfræðiráðstefna á Norðurlöndum frá upphafi fræðigreinarinnar og mögulega sú stærsta í heiminum. Hún er vettvangur fræðslu og samskipta á milli fræðafólks, aðila úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, fagfólks, aðila í þjónustu og hjá yfirvöldum, o.fl. Þátttakendur koma frá Norðurlöndunum en einnig frá Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og víða að úr heiminum.

Eins og önnur ríki stendur Ísland frammi fyrir margþættar áskoranir í framkvæmd réttindasáttmála fatlaðs fólks. Nú þegar ráðstefnan er haldin á Íslandi býðst öllum þeim sem koma að málefnum fatlaðs fólks tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir, nálganir og aðferðir á sviði fötlunarfræði á Norðurlöndum og á alþjóðavísu.

Við bjóðum hér með öllum sem hafa áhuga á málefnum fatlaðs fólks að taka þátt í ráðstefnunni. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst á nndr2023.is til að tryggja þátttöku (https://nndr2023.is/registration/ ). Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar biður einnig um að þessi skilaboð verði dreifð til allra sem kunna að hafa áhuga. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á ráðstefnu NNDR 2023.

Fyrir hönd undirbúningsnefndarinnar,
Stefan C. Hardonk
Dósent í fötlunarfræði við Háskóla Íslands og formaður Félags um fötlunarrannsóknir