Mat á stuðningsþörf barna (Supports Intensity Scale, Children´s Version; SIS-C)

Matskerfið er notað á Íslandi og víðar um heiminn fyrir fötluð börn með langvarandi stuðningsþarfir og hefur verið staðlað hér á landi á fyrir 5–17 ára. Fjölmargir þroskaþjálfar tóku þátt og aðstoðuðu við stöðlun á matskerfinu.

Í kynningunni verður farið yfir faglegan og fræðilegan bakgrunn, áherslur og aðferðir við að meta stuðningsþörf með matskerfinu, túlkun á niðurstöðum, notkun og notagildi fyrir þroskaþjálfa með það að markmiði að auka lífsgæði fatlaðra barna.

Fyrirlesarar: Guðný Stefánsdóttir og Þóranna Halldórsdóttir þroskaþjálfar

Athugið að vegna Covid-19 faraldursins verður ekki hægt að koma og hlýða á fyrirlesturinn. Hann verður aðeins í streymi á streymissíðu BHM 

Athugið að um endurtekningu er um að ræða frá 12. febrúar síðast liðnum.

Skráning á streymi