Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri

IRK, Embætti landlæknis og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði á netinu fimmtudaginn 29. október undir yfirskriftinni „Fjarvinna og staðvinna - Ógnir og tækifæri“

Dagskrá

Fjarvinnan og framtíðin - Lífið í miðju stormsins
Hinrik Sigurður Jóhannesson mannauðsstjóri Advania

Kóvít-19 hefur ýtt stjórnendum út í breytingar - Afleiðingar og lærdómur
Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Viðskiptadeild HÍ og rithöfundur.

Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri hjá VIRK stjórnar fundinum.

Morgunfundinum verður streymt fimmtudaginn 29. október kl. 8.30-10.00 á vefsíðum stofnanna þriggja - sjá viðburðinn á Facebook.

Morgunfundurinn er sá sjötti í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.