CAT-kassinn og CAT-vefappið - Námskeið í KRÍUNESI við Elliðavatn

Fræðsla um notkun CAT-kassans með áherslu á nýju útgáfuna
Myndbönd með dæmum um notkun
Æfing í að nota gögn CAT-kassans
Kynning á CAT-vef appinu og æfing í notkun þess.

Kennarar:
Ásgerður Ólafsdóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi og
Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi

CAT-kassinn kom upphaflega út í íslenskri þýðingu þeirra tveggja í júní 2005. Síðastliðið haust þýddu þær svo nýja útgáfu af CAT-kassanum sem kom út í ársbyrjun 2023. Nýja CAT-kassann er hægt að panta með því að senda tölvupóst á netfangið sales@cat-kit.com. Þýðendur veita nánari upplýsingar.

Áskrift að CAT-vefappinu er í gegnum heimasíðu CAT www.cat-kit.com.

Námskeiðsgjald: kr.34.000

Innifalið: Hádegisverður, kaffi og meðlæti, námskeiðsgögn.
Þá fá þátttakendur frían aðgang að CAT-appinu í þrjá mánuði.

Skráning: asgol@icloud.com eða sighjart52@gmail.com

Við skráningu þarf að taka fram nafn, kennitölu, netfang og heimilisfang greiðanda. Einnig er gagnlegt að þátttakendur taki fram hvar þeir starfa. Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis fartölvu eða iPad til að prófa appið. Skráning þarf að fara fram sem fyrst, í siðasta lagi viku fyrir námskeið. Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka fyrir námskeiðið.