Vissir þú?

Að annað skrefið í að innleiða styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu er að vinnutímanefnd á hverjum vinnustað hefji undirbúninginn. Nefndin kynnir sér fræðsluefni um styttingu vinnuvikunnar og greinir stöðuna á vinnustaðnum til að draga fram gagnkvæman ávinning starfsfólks og stjórnenda.​

Dæmi um þetta er greining á þjónustu og helstu álagspunktum, hversu staðbundið starfsfólk er við störf sín og hvaða sóknarfæri eru í vinnufyrirkomulagi, verklagi, samvinnu og tímastjórnun. Hvaða breytingar þarf að gera til að nýta megi tímann betur og ná markmiðinu um hámarksstyttingu? Afrakstur vinnunar nýtist sem fóður fyrir samtal á vinnustaðnum þar sem allt starfsfólk tekur þátt. ​

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni Betri vinnutími ​

Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er samvinnuverkefni ​

stjórnenda og starfsfólks.​