Viðurkenning fyrir lokaverkefni í þroskaþjálfafræðum

Um síðastliðin áramót ákváðu Landssamtökin Þroskahjálp í samráði við þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands að samtökin  myndu veita viðurkenningu fyrir lokaverkefni  til B.A. – gráðu í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands.
Markmiðið viðurkenningarinnar væri að  efla ritsmíð og nýsköpun við þroskaþjálfabraut og ekki síst að vekja athygli á verkefni sem væri hagnýtt og unnið að hugmyndaauðgi.

Leiðbeinendur lokaverkefna voru beðnir að  tilnefna verkefni til verðlaunanna og umsjónarmaður lokaverkefna falið að  velja úr tilnefndum  verkefnum allt að þrjú verkefni sem þættu framúrskarandi. Dómnefnd skipuð fulltrúa Þroskahjálpar, Átaks, Þroskaþjálfafélagi Íslands auk umsjónarmanns lokaverkefna við þroskaþjálfabraut ákveði síðan það verkefni sem viðurkenningu hlýtur.  

Fyrir utan viðurkenninguna er óskað eftir því að verðlaunahafar kynni verkefnið í Tímariti Þroskahjálpar og fyrir þá umfjöllun verði greiddar kr. 40.000.

Dómnefnd hefur nú lokið störfum  og komist að þeirri niðurstöðu að fyrsta verkefni sem viðurkenninguna hljóti sé verkefni þeirra Eddu Bjarkar Jóndóttur og Jóhönnu Marsibil Pálsdóttur „Eldað með myndum - uppskriftabók“   Í umsögn dómnefndar kemur fram að um sé að ræða  Uppskriftabók með myndrænum leiðbeiningum sem stuðli að sjálfstæðara lífi,valdeflingu og efli  sjálfsákvarðanarétt og sjálfræði  þeirra einstaklinga sem nýti sér bókina.