Umsögn ÞÍ á skýrslu starfshóps um greiningu tækifæra

Óskað var eftir umsögn Þroskaþjálfafélags Íslands varðandi skýrslu starfshóps um Greiningu tækifæra til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, gunnskóla og frístundaheimila.

Verkefni starfshópsins, sem stofnaður var af borgarráði 3. nóvember 2010, var að skoða og greina þau tækifæri sem kunna að vera til staðar til endurskipuleggja og/eða sameina skóla- og frístundaheimili með hagræðingu og faglegan ávinning í huga. Í starfinu hafði hópurinn að leiðarljósi að standa vörð um faglegt starf og að halda í styrkleika hvers leikskóla, grunnskóla og frístundaheimilis. 

Tillögur starfshópsins og umsögn ÞÍ má sjá á: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4422/7534_view-4359/