Þroskaþjálfafundir

Þriðjudaginn 21. september var haldinn þroskaþjálfafundur með þroskaþjálfum sem starfa hjá  Ás styrktarfélagi. Fundurinn var vel sóttur. Fimmtudaginn 23. september var haldinn fundur á Hvolsvelli með þroskaþjálfum sem starfa á Suðurlandi og Vestmanneyjum, um 20 manns voru á fundinum.  Búið er að skipuleggja fundi með þroskaþjálfum starfandi hjá SSR, 13. október kl 16.00 í Borgartúni 6. Föstudaginn 8. október kl:8.00 verður haldinn fundur með þroskaþjálfum hjá  Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins sá fundur verður haldinn á Digranesvegi 5 í Kópavogi. Einnig er verið að skipuleggja fleiri fundi en ekki er  komin dagsetning á þá. Nánar auglýst síðar.