Stuðningur við félagsráðgjafa

Þroskaþjálfafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við félagsráðgjafa í kröfum þeirra um bætt kjör og að fá leiðrétingu launa sinna.

Félagsráðgjafar sinna mikilvægu starfi af metnaði og dugnaði. Mikil fagleg uppbygging hefur átt sér stað á liðnum árum og oft á tíðum við erfiðar aðstæður eftir „kreppuna“.  Samfélagið felur félagsráðgjöfum  mikla ábyrgð sem stéttin stendur svo sannarlega undir. Sá hópur sem þeir sinna mega ekki við því að missa þá þjónustu sem félagsráðgjafar sinna hjá Reykjavíkurborg. Veruleg hætta er á brotthvarfi úr stéttinni ef kjör félagsráðgjafa  verða ekki leiðrétt.  Þroskaþjálfafélag Íslands  hvetur því viðsemjendur félagsráðgjafa  til að virða starf þeirra að verðleikum.  Það er löngu tímabært að meta starf þeirra sem sinna samborgurum sínum til jafns við önnur störf.