Nýr formaður ÞÍ

Í dag var haldinn aðalfundur ÞÍ í Borgartúni 6. Þar bar helst til tíðinda að Salóme Anna Þórisdóttir sem hefur verið formaður ÞÍ í 8 ár lét af störfum. Það er jú regla í ÞÍ að hámarkstími  formanns samfellt í einu eru 8 ár.  Félagið þakkar henni vel unnin störf fyrir okkur þroskaþjálfa og óskar henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur. En til gamans má geta þess að Salóme var á fundinum kjörin í Fagráð ÞÍ.

Undirritaður þakkar sérstaklega fyrir gott samstarf okkar öll þessi ár.

Fundargerð


Starfsmenn fundarins með fundarstjóra í miðju


Valborg  Helgasdóttir gjaldkeri kynnir reikninga félagsins.

Meira af fundinum síðar

MHB