Minnum á aðalfund ÞÍ 28. apríl kl 17

Minnum á aðalfund þroskaþjálfafélags Íslands sem haldinn verður þriðjudaginn 28. apríl  n.k. og hefst klukkan 17.00 í Borgartúni 6, 3 hæð.

Dagskrá:
•          Kosnir starfsmenn fundarins
•          Formaður leggur fram skýrslu stjórnar
•          Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess
•          Lagabreytingar
•          Kosning í stjórn, nefndir og ráð
•          Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara
•          Lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöld ákveðin
•          Önnur mál

Í lok fundar mun Hanna Kristín Sigurðardóttir þroskaþjálfi og verkefnastjóri ÞÍ kynna niðurstöður starfsdaga 2015 um framtíðarsýn þroskaþjálfa
Aðalfundargögn