Málefni fatlaðs fólks á tímamótum- horft til framtíðar

Mikil deigla er í málefnum fatlaðra. Um næstu áramót mun ábyrgð á málaflokknum færast frá ríki til sveitarfélaga. Þessi breyting felur í sér margvísleg tækifæri til breytinga og útbóta í málaflokknum, í hugmyndafræði, skipulagi og þjónustu við fatlaða.   Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlaða felur í sér ábendingar um hvað megi betur fara.   Á síðustu árum hefur ný nálgun- ný hugmyndafræði í málefnum fatlaðra rutt sér rúms. Nýlegur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun leggur þar línurnar.  Hann felur í sér mikilvægar skuldbindingar í réttindamálum fatlaðra sem byggja á að fötluðum einstaklingum sé tryggð þau grundvallarréttindi að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu.  Á málþinginu er litið til málefna fatlaðs fólk út frá mörgum sjónarhornum, horft er  til framtíðar og sjónum beint að stjórnsýslu, þjónustu við fatlaða og hugmyndafræði með áherslu á úrbætur.  

Ráðstefnan "Málefni fatlaðs fólks á tímamótum- horft til framtíðar" Verður haldinn 22 september á vegum Félagas og tryggingarmálaráðuneytis, Örykjabandlagsins, Þrosskahjálpar, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum.

Grandhótel 22. september frá 13:30 til 17:00

Þátttökugjald er 2900,- , en 1200,- fyrir öryrkja og námsmenn (kaffi og meðlæti innifalið).  Skráning  HÉR

DAGSKRÁ:

1.  Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra - ávarp

2.  Lára Björnsdóttir, sviðstjóri velferðarsviðs Félags- og tryggingamálaráðuneytisins          - Málaflokkur fatlaðs fólks á tímamótum - Hver er staðan og hverjar eru helstu áskoranir?

3.  Gyða Hjartardóttir, félagsþjónustufulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.    -   Hvernig eru sveitarfélögin að undirbúa sig undir að taka við málefnum fatlaðs fólk frá ríkinu  um næstu áramót?  

4.   Kristín Kalmansdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar -           Þjónusta við fatlað fólk, tækifæri til að gera betur-Hvað segir ný skýrsla Ríkisendurskoðunar?

5.   Gerður Árnadóttir formaður Þroskahjálpar  og Guðmundur Magnússon formaður Öryrkjabandalagsins   -   Sjónarmið notenda: Ný tækifæri við færslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga.

6.   Stella Kristín Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar              -  Sjónarmið þess er veitir þjónustuna:  Ný tækifæri, áskoranir og ávinningur við færslu málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga byggt á fyrri reynslu af flutningi verkefna frá ríki til borgar.

7.    Ómar H Kristmundsson, prófessor í stjórnsýslufræðum HÍ
    Stjórnsýsla í málefnum fatlaðs fólks: Að hverju þarf að huga?

8.    Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum HÍ                               Nýjar hugmyndir og ný framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks.

9.    Umræður og fyrirspurnir

Stjórnandi málþings:  Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, í félags- og trygginganefnd Alþingis

Málefni fatlaðs fólks standa á tímamótum. Ákveðið hefur verið að flytja málaflokkinn frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót. Þessi breyting felur í sér margvísleg tækifæri til útbóta, í hugmyndafræði, skipulagi og þjónustu við fatlað fólk.   Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um þjónustu við fatlaða felur í sér ábendingar um hvað megi betur fara.   Á síðustu árum hefur ný nálgun og ný hugmyndafræði rutt sér rúms sem byggir á sjónarmiðum um mannréttindi og jafnrétti fyrir fatlað fólk. Nýr mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna þar sem fötluðum einstaklingum eru tryggð þau grundvallarréttindi að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu er þar lagður til grundvallar.  Á málþinginu er horft til framtíðar og sjónum beint að stjórnsýslu, hugmyndafræði og þjónustu við fatlað fólk með áherslu á úrbætur.

Þátttökugjald er 2900,- , en 1200,- fyrir öryrkja og námsmenn (kaffi og meðlæti innifalið).  Skráning hér: Málþing