Kjarakönnun 2010

Hægt er að skoða niðurstöður kjarakönnunar sem félagið sendi út á félagsmenn nú í lok september hér til hliðar á síðunni. Könnunin hafði þann tilgang að afla upplýsinga hjá félagsmönnum varðandi áhersluatriði í komandi kjarasamningsgerð. 76% svörun fékkst og heimtur því góðar. Samninganefndir félagsins munu skoða vel þær athugasemdir sem félagsmenn sendu inn og nota þær við samningsgerðirnar en fyrsti fundur í kjaraviðræðum þetta haustið verður nú nk. miðvikudag.