Innleiðing starfsmats hjá sveitarfélögum

Vegna niðurstöðu starfsmats samkvæmt undirritun samkomulags um breytingar og framlengingu kjarasamnings Þroskaþjálfafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, með gildistíma frá 1. september 2015 til 31. mars 2019.

Þessu ferli átti að vera lokið þann 1. júní 2018, en seinkun var á innleiðingunni og það var ekki fyrr en 31. janúar sl. sem gengið var formlega frá undirritun allra starfa aðildarfélaga BHM sem skrifuðu undir samning sem innihélt starfsmat. Því er lokahnykkur innleiðingar starfsmatsins framundan, það er að varpa félagsmönnum inn í starfsmatskerfið STARFSMAT. Nú þegar hefur félagið sent öllum félagsmönnum sem taka nú laun samkvæmt kjarasamningi ÞÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga tölvupóst ásamt fundarboði þann 4. mars næstkomandi til að fara yfir stöðuna.

Launatöflur og tengitafla
Leiðbeiningar sendar sveitarfélögum
Lokavörpum og starfaskilgreiningar
Vörpun frá bráðabr. röðun 2016 yfir í starfsmat

Samstarfsnefndarfundargerð undirrituð 31. janúar 2019