Hafnarfjarðarbær óskar eftir ráðgjafa í stuðnings- og stoðþjónustuteymi á fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða 100% starf.

Teymi stuðnings- og stoðþjónustu sér um almenna og sérhæfða þjónustu og ráðgjöf við aldrað  fólk, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra á grundvelli laga um þjónustu við faltað fólk með langvarandi stuðningsþarfir  og almenna þjónustu við eldra fólk og aðra sem eru í þörf fyrir slíka þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þá er stuðningur til fatlaðra barna og fjölskyldna veittur á grundvelli laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á samstarf með heildarsýn að leiðarljósi sem og metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast faglega ráðgjöf og stuðning við fötluð börn og fjölskyldur þeirra og við fatlað fólk.
  • Annast faglega ráðgjöf og stuðning við þjónustuþega t.d. eldra fólk og fatlað fólk sem er í þörf fyrir þjónustu
  • Annast móttöku og greiningu umsókna um þjónustu
  • Sér um að meta þjónustuþörf í samráði við umsækjanda
  • Gerir rökstuðning um veitta þjónustu sem lagðar eru fyrir teymisfund.
  • Er í hlutverki málstjóra á grundvelli laga um samþætta þjónustu, þegar það á við.
  • Sér um gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana og kemur að því að skipuleggja þjónustu.
  • Heldur utan um og vinnur skráningar í einstaklingsmálum
  • Veitir þjónustunotendum, aðstandendum og fleirum ráðgjöf í málum sem varða þjónustuna
  • Hefur frumkvæði og tekur þátt í að þróa úrræði í stuðningsþjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um starfsréttindi í iðjuþjálfun, þroskaþjálfun eða félagsráðgjöf.
  • Þekking á velferðarmálum sveitarfélaga er kostur
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni
  • Góð tölvukunnátta
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustuteymis, astagudrun@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2024. 

Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.