Forstöðumaður Öldunnar, Borgarnesi

Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu forstöðumanns Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra.

Aldan starfar samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu, kertagerð ofl. og sér um pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun
  • Reynsla af starfi með fötluðum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Sér um stjórnun, áætlanagerð og rekstur Öldunnar
  • Ber ábyrgð á innra starfi, starfsmannamálum og samskiptum við aðstandendur og samstarfsaðila
  • Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum
  • Veitir leiðsögn til starfsmanna og leiðbeinenda
  • Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast Öldunni

Upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri, sími 433-7100 á vildis@borgarbyggd.is

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Borgarbyggð á borgarbyggd@borgarbyggd.is

Umsóknarfrestur er til 1. október 2018.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.