BHM krefst kjaraleiðréttingar

BHM krefst kjaraleiðréttingar


Ályktun miðstjórnar BHM vegna kjarasamninga aðildarfélaga, samþykkt á miðstjórnarfundi 23. júní 2010
BHM er reiðubúið til samráðs og samvinnu um leiðir til að takast á við efnahagsvanda þjóðarinnar.

Bandalagið minnir á að laun flestra háskólamanna hafa verið fryst, ef ekki lækkuð, frá því um mitt ár 2008.

Bandalagið mun því aðeins taka þátt í heildarsátt um kjaramál á íslenskum vinnumarkaði að kjarasamningar verði gerðir við aðildarfélög BHM og að í kjarasamningaviðræðum verði tekið tillit til eftirfarandi þátta:

•Leiðrétt verði kaupmáttarskerðing félagsmanna frá miðju ári 2008.
•Markvisst verði unnið að því að háskólamenntun sé metin til launa.
•Lokið verði við óuppfyllt ákvæði frá fyrri samningum, svo sem um nýtt fyrirkomulag sí- og endurmenntunar.
•Tekið verði tillit til námslána við umfjöllun um skuldabyrði heimilanna í landinu.
•Lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna verði endurskoðuð. Almennt ákvæði um yfirvinnuskyldu verði fellt út og  einnig verði ákvæði um skyldu til að hlíta breytingum á starfi fellt út eða því breytt þannig að ákvæðum ráðningarsamninga verði ekki breytt einhliða.
•Vinnulöggjöf verði breytt þannig að nýr kjarasamningur gildi frá þeim degi þegar sá sem fyrir er fellur úr gildi.
•Staðið verði við fyrirheit um starfsendurhæfingarsjóð.
•Uppsagnarfrestur starfsmanna 55 ára og eldri verði lengdur.
 

Ályktun miðstjórnar BHM vegna kjarasamninga aðildarfélaga

samþykkt á miðstjórnarfundi 23. júní 2010