Ályktun stjórnar BHM um stöðu kjaraviðræðna við ríkið

Stjórn BHM lýsir yfir miklum vonbrigðum með stöðu kjaraviðræðna bandalagsins við ríkið. Verkföll félagsmanna hafa nú staðið yfir í rúmar þrjár vikur án þess að nokkur tillaga hafi komið frá ríkinu sem gæti skapað umræðugrundvöll um kjarasamninga sem sýna að menntun sé metin til launa. Síendurtekin tregða samninganefndar ríkisins til fundahalda hefur einnig orðið til þess að tefja framgang viðræðna að óþörfu. Krafa BHM í yfirstandandi kjaraviðræðum er fyrst og fremst að menntun verði metin til launa. Síendurteknar fullyrðingar um að sameiginlegar kröfur BHM félaganna snúist um 50-100% launahækkanir eiga sér engan stað í raunveruleikanum og verða ekki túlkaðir öðruvísi en sem tilraun til að afvegaleiða opinbera umræðu. Ekki verður þó horft fram hjá því fordæmi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur sett með kjarasamningum við lækna og framhaldsskólakennara sem m.a tryggðu þeim 25-30% launahækkunum á þeim grundvelli að eðlilegt sé að menntun þeirra sé metin til launa. Mikið er undir í yfirstandandi kjaraviðræðum. Fram hefur komið í skýrslum Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál ríkisins að ríkið muni eiga í vandræðum með að laða til sín hæft fólk til að sinna mikilvægri þjónustu ríkisins bjóði það ekki viðunandi starfskjör. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í opinberri umræðu sýnt að hann skilur um hvað málið snýst og hversu alvarleg staða það er fyrir ríkið og samfélagið allt ef fólk sér ekki fjárhagslegan hvata til þess að mennta sig. Stjórn BHM skorar á fjármála- og efnahagsráðherra og samninganefnd hans að beina nú öllum sínum kröftum að gerð kjarasamninga við BHM svo verkföllum megi ljúka sem allra fyrst. Samninganefnd BHM bíður við samningaborðið eftir tillögum sem sýna skilning ráðamanna á nauðsyn þess að meta menntun til launa. Tími yfirlýsinga er liðinn, nú þarf ríkið að grípa til aðgerða sem duga til að þessi deila leysist.