Aðalfundur 2. apríl 2012

Aðalfundur Þroskaþjálfafélags Íslands verður haldinn mánudaginn 2. apríl næstkomandi og hefst klukkan 17 í Borgartúni 6, 3 hæð.

Dagskrá
a) Kosnir starfsmenn fundarins
b) Formaður leggur fram skýrslu stjórnar
c) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til afgreiðslu og gerir grein fyrir fjárhag þess
d) Lagabreytingar
e) Kosning í stjórn, nefndir og ráð
f) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara
g) Lögð fram fjárhagsáætlun næsta árs og félagsgjöld ákveðin
h) Önnur mál