Þroskaþjálfi við Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir þroskaþjálfa í 80-100% stöðu frá 1. ágúst 2024

Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði. Starfsstöðvar skólans eru á Hvanneyri þar sem eru 35 nemendur í 1.-5. bekk, á Kleppjárnsreykjum þar sem eru 90 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi þar sem eru um 57 nemendur í 1.-10. bekk.

Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymi með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Þroskaþjálfi vinnur með teymunum. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þroskaþjálfi vinnur í nánu samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila
  • Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, deildarstjóra og foreldra.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Jákvæðni, sveigjanleika og góða samskiptahæfni.
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Gott vald á íslensku máli.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Umsókn skal einnig fylgja  kynningarbréf.

Öllum umsóknum verður svarað.

Vinnutími: Dagvinna

Starfshlutfall: 80-100% 

Starfssvið: Fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur er til og með: 25. mars 2024

Nánari upplýsingar veitir

  • Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri,  
    netfang: helga@gbf.is 
    símanúmer: 433 7301 / 8611661
  • María Jónsdóttir deildarstjóri sérkennslu
    netfang: maria.jonsdottir@gbf