laugardagur 4 september 09 2010

 

Siðareglur þroskaþjálfa
 

1. grein:
Þroskaþjálfi beitir fagþekkingu sinni í því skyni að bæta lífsskilyrði og lífsgæði skjólstæðinga sinna. Virðing og umhyggja fyrir skjólstæðingum og aðstandendum þeirra skal vera grunnur í starfi þroskaþjálfa.

 

2. grein:
Þroskaþjálfi skal ávallt standa vörð um réttindi skjólstæðinga sinna. Hann skal rækja starf sitt af samviskusemi, óháð þjóðerni, kynþætti, trúarbrögðum, litarhætti, kynferði og þroskastigi skjólstæðingsins.  Þroskaþjálfi skal bera virðingu fyrir lífaldri skjólstæðingins, einkalífi hans og eignum.

 

3. grein:
Þroskaþjálfi er bundinn þagnarskyldu varðandi upplýsingar um skjólstæðinga, hvaða formi sem þær eru skráðar. Þær skulu geymdar þannig að óviðkomandi hafi ekki aðgang að þeim. Séu persónulegar upplýsingar um skjólstæðing notaðar sem fræðsluefni skal fá til þess leyfi frá skjólstæðingi og/eða aðstandendum hans og skal þá nafnleyndar gætt sé þess óskað. 

 

4. grein:
Þroskaþjálfi skal einungis taka að sér starf eða ráðgjöf sem hæfir menntun hans. Hann skal leitast við að veita þjónustu samkvæmt ströngustu faglegum kröfum. Þroskaþjálfa ber skylda til að viðhalda þekkingu sinni.

 

5. grein:
Þroskaþjálfi skal jafnan sýna drengskap í samskiptum við starfsfélaga. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt getur álit almennings á starfi þroskaþjálfa eða skert hagsmuni stéttarinnar.

 

6. grein:
Þroskaþjálfi skal leita aðstoðar annarra sérfræðinga ef þörf er á. Hann skal virða sérþekkingu annarra faghópa og nota sérþekkingu sína til að ráðleggja öðrum.

 

7. grein:
Þroskaþjálfi skal gæta þess að starfsákvæði séu í samræmi við samninga og samþykktir viðurkenndar af Þroskaþjálfafélagi Íslands. 

 

8. grein:
Þroskaþjálfi skal kynna sér og starfa eftir þeim lögum og reglugerðum sem í gildi eru hverju sinni um málefni fatlaðra og þroskaþjálfastéttina sjálfa, svo og eftir öðrum þeim lögum og reglugerðum sem varða starf hans.

 

9. grein:
Verði þroskaþjálfi þess var að starfsfélagi hans hafi brotið siðareglur ber honum að ræða brotið við viðkomandi. Sé það árangurslaust ber að tilkynna brotið til siðanefndar Þroskaþjálfafélags Íslands. 

 

10. grein:
Siðareglur þessar ber ekki að skoða sem tæmandi lýsingu á góðum starfsháttum þroskaþjálfa.