Sambönd og samskipti – kynheilbrigði fólks með þroskafrávik
Vekjum athygli á einstöku tækifæri í haust þegar höfundar námsefnisins Relationships Decoded koma til Íslands og kynna nýtt námsefni fyrir ungmenni.

Relationships Decoded for Adolescents – Sambönd og samskipti fyrir ungmenni er nýtt gagnreynt kennsluefni fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska frá 12 ára aldri. Efnið fjallar meðal annars um sambönd og samskipti, mörk, samþykki, öryggi, netnotkun og félagslega færni og miðar að því að styðja ungmenni við að skilja betur ólíkar tegundir sambanda og samskipta og öðlast aukið öryggi í félagslegum aðstæðum.
Námsefnið Sambönd og samskipti (Relationships Decoded) fyrir fullorðna hefur þegar verið þýtt á íslensku og er aðgengilegt á vef MMS. Nú hafa höfundar þess þróað sambærilegt námsefni fyrir ungmenni og undirbúningur að íslenskri þýðingu er hafinn.
Athugið varðandi skráningu:
Skráning á þjálfunardaginn 6. október gildir einnig fyrir kynninguna 5. október. Ekki þarf því að skrá sig sérstaklega á kynninguna ef skráð er á þjálfunardaginn. Þjálfunardagurinn er eingöngu ætlaður fagfólki og er ekki í boði sem stakur skráningarkostur.
5. október – Kynning á efninu
Fyrir aðstandendur, fagfólk og aðra áhugasama sem vilja kynna sér námsefnið og fræðilegan grunn þess. Skráðu þig hér!
5.-6. október – Kynning og þjálfunardagur fyrir fagfólk
Fyrir fagfólk sem kemur til með að nota námsefnið í beinni kennslu, fræðslu eða þjálfun með ungmennum. Ein skráning gildir fyrir báða dagana. Skráðu þig hér!
Takmarkað sætaframboð er í boði.
