NNDR 2027: Fjölbreytileiki, jöfnuður og inngilding - Diversity, Equity and Inclusion
Þema NNDR 2027 er Fjölbreytileiki, jöfnuður og inngilding (DEI). Á tímum aukins samfélagslegs klofnings er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa vörð um réttindi fatlaðs fólks og vinna gegn mismunun og útilokun.
Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á mikilvægi inngildandi rannsókna, ólíkra sjónarmiða og samvinnu. NNDR 2027 verður vettvangur fyrir fræðafólk, fagfólk og hagsmunaaðila til að efla þekkingu og standa saman í þágu mannlegs fjölbreytileika og réttar allra til að sjást, heyrast og njóta virðingar.
