Einhverfa fullorðinna – Hvað þarf að breytast
Fjallað verður um stöðu fullorðins einhverfs fólks, geðheilbrigðisþjónustu og stuðningsúrræði – út frá faglegri þekkingu, opinberum skýrslum og reynslu einhverfs fólks og aðstandenda. Málþingið endar með pallborðsumræðum þar sem áhersla er lögð á að ræða um úrbætur í málaflokknum.
Fundarstjóri er Vilhjálmur Bergmann Bragason.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Boðið verður uppá léttar veitingar. Skráning er nauðsynleg með tölvupósti á netfangið: malthing.um.einhverfu@gmail.com eða með því að skanna QR-kóðann í meðfylgjandi auglýsingu.
Málþingið verður einnig í beinu opnu streymi á netinu en útsendinguna má nálgast í gegnum facebook-síðu Geðverndarfélag Akureyrar. Ekki þarf að skrá sig til að horfa á útsendinguna.

