CAT-kassinn og CAT-vefappið

Námskeið í SMIÐJUKOTI, Einholti 12, 105 Reykjavík. Gengið inn frá Háteigsvegi, á móts við Háteigsveg 12.

föstudaginn 9. október 2026, kl. 9:00-15:30

Strætisvagnar 11 og 13 stoppa við Kjarvalsstaði. Þar í kring eru einnig næg bílastæði

Fræðsla um notkun CAT-kassans með áherslu á útgáfuna frá 2023.

Myndbönd með dæmum um notkun.

Æfing í að nota gögn CAT-kassans.

Kynning á CAT-vef appinu og æfing í notkun þess.

Kennarar:

Ásgerður Ólafsdóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi og

Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi

 

CAT-kassinn kom upphaflega út í íslenskri þýðingu þeirra tveggja í júní 2005. Haustið 2022 þýddu þær svo nýja útgáfu af CAT-kassanum sem kom út í ársbyrjun 2023. Nýja CAT-kassann er hægt að panta með því að senda tölvupóst á netfangið sales@cat-kit.com. Þýðendur veita nánari upplýsingar.

Áskrift að CAT-vefappinu er hægt að panta með því að senda tölvupóst á sales@cat-kit.com

Námskeiðsgjald: kr.36.000

Innifalið: Hádegisverður, kaffi og meðlæti, námskeiðsgögn.

Þá fá þátttakendur frían aðgang að CAT-vefappinu í þrjá mánuði.

Skráning: asgol@icloud.com eða sighjart52@gmail.com

 

Við skráningu þarf að taka fram nafn, kennitölu, netfang og heimilisfang greiðanda. Einnig er gagnlegt að þátttakendur taki fram hvar þeir starfa. Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis fartölvu eða spjaldtölvu til að prófa appið. Skráning þarf að fara fram sem fyrst, í siðasta lagi viku fyrir námskeið. Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka fyrir námskeiðið.