Betri þjónusta fyrir fatlað fólk, málþing Þroskahjálpar

Þroskahjálp stendur fyrir málþingi þar sem fjallað verður um hvernig tryggja megi að þjónusta við fatlað fólk styðji betur við mannréttindi og þátttöku í samfélaginu.
Rætt verður um hlutverk og verkefni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, starf geðheilsuteymis taugaþroskaraskana og mikilvægi sjálfsákvörðunaréttar og studdrar ákvörðunartöku.

Málþingsstjórar:
Fabiana Morais og Ævar Þór Benediktsson

Dagskrá:

13:00 Setning

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

13.10 – 13.30: Opnunarerindi
Þarfir og réttindi þjónustuþega í forgrunni:
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða og eftirlitsstofnunar velferðarmála


13.30 – 14.00: Sófaspjall 1
Eiríkur Smith, Herdís Gunnarsdóttir og Alma Ýr Ingólfsdóttir
Spyrill: Hekla Björk Hólmarsdóttir, aðjúnkt við HÍ

 

— Stutt hlé í 10 mínútur

 

14.10 – 14.30: Erindi
Áskoranir í verkefnum geðheilsuteymis taugaþroskaraskana
Bjargey Una Hinriksdóttir, teymisstjóri


14:30 – 15:00: Sófaspjall 2
Dagur Bjarnason, Hanna Kristín Sigurðardóttir og Gerður Aagot Árnadóttir
Spyrill: Atli Már Haraldsson, talsmaður fatlaðs fólks

 

— Stutt hlé í 10 mínútur


15.10 – 16:00: Sófaspjall 3
Árni Viðar Þórarinsson, Laufey E. Löve, Guðrún V. Stefánsdóttir og Friðrik Sigurðsson
Spyrill: Óli Snævar, talsmaður fatlaðs fólks


16:00 – 17:00 Léttar veitingar

 

Málþingið er á Hótel Reykjavík Grand og byrjar kl. 13.
Málþingið er haldið í salnum Háteigur sem er á 4.hæð.

 

Hjálplegar upplýsingar

Rýmið er aðgengilegt, og á staðnum verða bæði táknmálstúlkur
og teiknari sem mun túlka efni málþingsins.

Hægt verður að horfa í streymi.
Streymið mun birtast á vefsíðu Þroskahjálpar nokkrum dögum fyrir málþingið.
Streymið hefst kl. 13 þann 11. október.
Þú getur horft á upptöku af málþinginu þegar það er búið.

Boðið verður upp á veitingar.
Við biðjum gesti að skrá sig á málþingið,
svo við vitum hvað við eigum að panta mikið af veitingum!

Skráning fer fram hér

Dagskrá

Aðgengi

Gott aðgengi er fyrir fólk með hreyfihömlun á Hótel Reykjavík Grand.

Það verður táknmálstúlkur bæði á fundinum og í streyminu.

Ef þú lendir í vandræðum getur þú hringt í Þroskahjálp í síma 588 9390