Þroskaþjálfi í Breiðagerðisskóla

Breiðagerðisskóli auglýsir 100% stöðu þroskaþjálfa lausa til umsóknar. Í Breiðagerðisskóla eru um 370 nemendur í 1. til 7. bekk. Starfsmenn skólans eru um það bil 60 og eru þeir samhentur hópur sem hefur á undanförnum árum þróað skólann til þeirra starfshátta sem einkenna hann í dag. Grunnstefið í stefnu skólans er að lykillinn að góðri menntun og vellíðan barnanna sem við skólann nema leynist í samvinnu og samábyrgð starfsmanna skólans og annarra þeirra sem að starfsemi hans koma. Þetta birtist meðal annars í nánu samstarfi kennara og starfsfólks og virku foreldrafélagi sem styður vel við skólann og nemendur hans. Rík áhersla er lögð á skólaþróun í takt við menntastefnu Reykjavíkurborgar, nýjar rannsóknir á námi og kennslu og þróun samfélagsins.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Að annast þjálfun og umönnun nemenda með fatlanir.

· Að þjálfa samskipta- og félagshæfni nemenda sem þess þurfa með.

· Að skipuleggja þjálfunaraðstæður, útbúa þjálfunargögn og fylgja því eftir að unnið sé að settum markmiðum.

· Að annast upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa skjólstæðinga sinna.

· Að veita foreldrum og kennurum og öðrum starfsmönnum leiðbeiningar og ráðgjöf.

Hæfniskröfur

· Hæfni í mannlegum samskiptum

· Frumkvæði og skipulagshæfileikar

· Menntun í þroskaþjálfafræðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 15. maí 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorkell Daníel Jónsson skólastjóri í síma 664-8148.

Breiðagerðisskóli
Breiðagerði 20, 108 Reykjavík