Specialisterne óska eftir þroskaþjálfa - iðjuþjálfa

 

Specialisterne (Sérfræðingarnir ses) óska eftir að ráða öflugan þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa sem mun bera ábyrgð á gerð einstaklingsbundinna þjálfunaráætlana fyrir þjónustuþega. Viðkomandi mun einnig gegna stóru hlutverki í þróun og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Taka viðtöl við umsækjendur um þjónustu Specialisterne og forráðamenn þeirra.

· Meta starfsfærni og þjálfunarúrræði þjónustuþega.

· Vinna að gerð, framkvæmd og endurskoðun einstaklingsbundinna áætlana.

· Veita einstaklingsmiðaðan stuðning með áherslu á sjálfstæði, virkni, virðingu og viðurkenningu.

· Taka virkan þátt í faglegri mótun og þróun starfseminnar.

· Veita samstarfsfólki faglega ráðgjöf, fræðslu og leiðsögn.

· Nýta fagþekkingu til að greina tækifæri til umbóta og þróunar þjónustunnar.

· Heimsækja vinnustaði (fyrirtæki og opinberar stofnanir) til að afla upplýsinga um störf við hæfi fyrir þjónustuþega Specialisterne.

· Veita vinnustöðum ráðgjöf og stuðning vegna starfsmanna með sérþarfir eða áskoranir vegna fötlunar.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Menntun sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.

· Reynsla af starfi með fólki á einhverfurófi eða með sértækar þarfir er æskileg.

· Góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að virkja fólk með sér.

· Frumkvæði og áhugi á faglegri þróun.

· Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði ásamt grunnfærni i ensku

Við bjóðum

· Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og þróun starfseminnar.

· Fjölbreytt og faglega krefjandi verkefni.

· Starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og þróun.

Specialisterne ses. er sjálfseignastofnun sem var stofnuð árið 2010 í samvinnu við Einhverfusamtökin. Á Íslandi eru um 5.500 einstaklingar (18 ára og eldri) á einhverfurófi sem þurfa sérhæfða þjónustu vegna taugaþroskaröskunar og áhrifa hennar í daglegu lífi. Specialisterne veita þessum hópi þjónustu í formi starfs- og virkniþjálfunar og stuðning við atvinnuleit í samstarfi við Vinnumálastofnun. Starfsemi félagsins er byggð á danskri fyrirmynd sem hefur verið aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Markmiðið er að meta og þjálfa árlega 15-20 einstaklinga á einhverfurófinu og veita sem flestum þeirra atvinnu, sé þess kostur. Bent er á frekari upplýsingar á heimasíðu www.specialisterne.is 

Meginmarkmið Specialisterne:

· Stuðla að nýjum virðisaukandi atvinnutækifærum fyrir einhverfa.

· Stuðla að því að efla og styrkja þá einstaklinga sem sækja þjónustu Specialisterne.

· Tryggja virkt samstarf við VMST og sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu, ráðuneyti og aðra hagsmunaaðila.

 

Starfsemin er í Síðumúla 32, á þriðju hæð.

Vinnuvikan er 36 stundir fyrir 100% starf, en til greina kemur að ráða í 50% til 100% starfshlutfall. Sveigjanlegur vinnutími í boði.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Njálsdóttir, framskvæmdastjóri, sími 863 6480 og netfang kristin@specialisterne.is 

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2026.