Kynningarfundur um kjarakönnun ÞÍ

Kynningarfundur um kjarakönnun ÞÍ verður haldinn þann 7. október næstkomandi í húsnæði félagsins Borgartúni 6, 3 hæð klukkan 16:00. Alls tóku 63,4 % félagsmanna þátt í þessari könnun og er hún afar yfirgripsmikil og gefur nokkuð góða mynd af stöðu okkar meðal háskólamenntaðra starfsmanna á vinnumarkaðnum. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og er markmiðið að hafa hana reglulega til að byggja upp gagnagrunn sem gagnast okkur í kjarabaráttunni. Umsjá kynningarinnar verður í höndum Þorláks Karlssonar en hann er rannsóknarstjóri hjá Maskínu ehf.