Forstöðuþroskaþjálfi yfir heimili í sveit
Skaftholt, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, óskar eftir að ráða til starfa forstöðuþroskaþjálfa á heimili fyrir fatlað fólk i í 70-100% stöðu frá áramótum. Skaftholt er heimili í sveit sem hefur í gegnum tíðina byggt stefnu sína á hugmyndum antroposófíu um þroska einstaklings. Áhersla er lögð á að styðja íbúa í daglegu lífi með tilliti til líkamlegra, sálrænna og andlegra þarfa. Sköpun, rytmi og samverustundir eru mikilvægir þættir sem stuðla að sjálfstæði, vellíðan og samfélagslegri þátttöku. Í Skaftholti búa 5 fullorðnir einstaklingar (fjölga um tvo eftir áramót) og sækja þau sér vinnu og dagþjónustu bæði innan og utan heimilisins. Lögð er áhersla á fjölbreytta og einstaklingsbundinni þjónustu.
Helstu verkefni:
- Stjórnun og umsjón fjölþættrar þjónustu í þágu fatlaðs fólks
- Mannaforráð
- Leiðsögn og ráðgjöf til starfsmanna
- Umsjón og gerð vaktaáætlana
- Umsjón yfir bókhaldi og launakjör
- Gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana
- Samskipti við þjónustunotendur og aðstandendur
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þroskaþjálfafræði eða hliðstæð menntun
- Starfsreynsla við stjórnun í þjónustu við fatlað fólk
- Góð tölvukunnátta
- Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Ef þú hefur ekki tök á að keyra í og úr vinnu daglega getum við komist að samkomulagi varðandi gistingu.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir og/eða umsókn með ferilskrá á netfangið sskaftholt@gmail.com.