Viljayfirlýsing um Alþjóðaráðstefnu AIEJI 2029 undirrituð

Þann 13. júní var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf vegna Alþjóðaráðstefnu AIEJI sem haldin verður í Reykjavík dagana 22.–24. maí 2029. Fyrir hönd Menntavísindasviðs Háskóla Íslands undirritaði Kolbrún Þ. Pálsdóttir, fráfarandi forseti sviðsins, og fyrir hönd Þroskaþjálfafélags Íslands undirritaði Jóhanna Lilja Ólafsdóttir varaformaður.

Viljayfirlýsingin er lykiláfangi í undirbúningi ráðstefnunnar og staðfestir sameiginlegan metnað aðila til að standa að öflugum alþjóðlegum viðburði á sviði þroskaþjálfafræðinnar. Hún styrkir jafnframt enn frekar samstarf Menntavísindasviðs og Þroskaþjálfafélags Íslands sem hefur byggst markvisst upp á undanförnum árum.

Samkvæmt yfirlýsingunni mun Þroskaþjálfafélag Íslands bera ábyrgð á framkvæmd ráðstefnunnar og heildarskipulagi hennar, þar á meðal fjárhagslegum þáttum. Menntavísindasvið Háskóla Íslands mun taka virkan þátt í stýrihópi ráðstefnunnar og leggja sitt af mörkum til mótunar dagskrár og faglegs innihalds, auk þess að styðja við tengsl við innlenda og erlenda fyrirlesara.

Lögð er áhersla á markvisst samstarf, reglulegt samráð og skýra verkaskiptingu til að tryggja vandaða og metnaðarfulla fagráðstefnu á alþjóðavettvangi. Viljayfirlýsingin er ekki bindandi um fjárhagslegar skuldbindingar, en felur í sér skýra stefnumörkun um áframhaldandi samstarf með það að markmiði að gera síðar formlegan samning um framkvæmd verkefnisins.

Við undirritun var Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur sérstaklega þakkað fyrir framlag sitt til eflingar samstarfs milli aðila. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í að styrkja tengsl háskólasamfélagsins og Þroskaþjálfafélags Íslands og þar með stuðlað að sterkari faglegum grunni þroskaþjálfafræðinnar. Henni voru færðar þakkir fyrir farsælt samstarf og óskað velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Undirritunin undirstrikar skýran vilja aðila til að standa sameiginlega að alþjóðlegum vettvangi þar sem þroskaþjálfar og annað fagfólk víða að úr heiminum kemur saman til að deila þekkingu, reynslu og móta framtíð fagsins.