Undirbúningur formlega hafinn fyrir heimsþing Aieji haldið hér í Reykjavík 22. - 24. maí 2029
22.09.2026
Þroskaþjálfafélag Íslands hefur tekið við keflinu af dönskum kollegum okkar í SL sem héldu AIEJI heimsþing þroskaþjálfa vorið 2025 í Kaupmannahöfn. Nú eru fyrstu skrefin stigin í undirbúningi næsta heimsþings sem fram fer í Reykjavík dagana 22.–24. maí 2029.
Í gær fengum við til okkar fulltrúa frá Danmörku sem deildu reynslu sinni og lærdómi af skipulagningu þeirra þings. Þekking þeirra og innsýn mun nýtast okkur vel á komandi árum við undirbúning þessa stóra alþjóðlega viðburðar.
Hlökkum til að taka á móti þroskaþjálfum og öðrum fagfólki frá öllum heimshornum til að miðla þekkingu, efla tengslanet og styrkja fagið á alþjóðlegum vettvangi.
Vinnuheiti þingsins er: „Þroskaþjálfar – drifkraftur breytinga“ (Social Educators – A Driving Force of Change)
Þemað endurspeglar vel mikilvægt hlutverk þroskaþjálfa í samfélaginu. Á hverjum degi stuðlar stéttin að auknum tækifærum, þátttöku, mannvirðingu og jákvæðum breytingum í lífi fólks. Saman getum við verið enn sterkari afl til góðra breytinga um allan heim.
Sjáumst í Reykjavík árið 2029! 


