Orlofsuppbót 2026

Orlofsuppbót félagsfólks ÞÍ er starfa hjá Reykjavíkurborg og ríki er 62.000 kr. árið 2026, miðast við fullt starf og skal greiða þann 1. júní.
Uppbótin greiðist miðað vð starfshlutfall og starfstíma öllu starfsfólki sem hafa verið samfellt í starfi í að minnsta kosti 13 vikur samfellt á orlofsárinu.

Orlofsuppbót félagsfólks ÞÍ er starfa hjá öðrum sveitarfélögum landsins er 62.000 kr. og miðast við fullt starf og skal greiða þann 1. maí.
Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag, þ.e. á orlofsárinu (1. maí – 30. apríl).