Brautskráning 48 kandídata með viðbótardiplómu til starfsleyfis sem þroskaþjálfi

Laugardaginn 13. júní fór fram hátíðleg útskriftarathöfn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands þar sem 48 einstaklingar útskrifuðust með viðbótardiplómu til starfsleyfis í þroskaþjálfafræði. Þroskaþjálfafélag Íslands óskar þeim öllum innilega til hamingju og býður þau velkomin í stéttina og félagið.

Þroskaþjálfafræði er fjögurra ára háskólanám sem samanstendur af þriggja ára BA-námi og eins árs námi á framhaldsstigi, viðbótardiplómu sem veitir rétt til starfsleyfis. Námið er sérhæft og krefjandi og miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til að veita fötluðu fólki fjölbreyttan stuðning og ráðgjöf. Þroskaþjálfar starfa á fjölmörgum sviðum samfélagsins, meðal annars í skóla- og frístundastarfi, innan velferðarþjónustu, á stofnunum og við réttindagæslu fatlaðs fólks.

Útskriftarathöfnin var haldin í samstarfi Háskóla Íslands og Þroskaþjálfafélags Íslands. Í ávarpi við athöfnina var Menntavísindasviði sérstaklega þakkað fyrir gott samstarf og fyrir að gera kleift að halda hátíðlega útskrift á þessum mikilvægu tímamótum. Jafnframt var Kolbrúnu Pálsdóttur, forseta sviðsins, þakkað fyrir farsælt samstarf undanfarin ár.

Í ræðunni var lögð áhersla á mikilvægi þess að útskrift nýrra þroskaþjálfa sé formleg og hátíðleg viðurkenning á faglegu hlutverki þeirra í samfélaginu. Þá voru nýútskrifaðir þroskaþjálfar hvattir til að sækja án tafar um starfsleyfi hjá embætti landlæknis, enda forsenda þess að geta hafið störf innan heilbrigðiskerfisins.

Þroskaþjálfar starfa samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn og gildum reglugerðum, auk þess að fylgja siðareglum stéttarinnar sem byggja á virðingu fyrir mannréttindum, frelsi og sjálfsákvörðunarrétti fatlaðs fólks. Við útskriftina afhenti Þroskaþjálfafélag Íslands nemendum siðareglur félagsins sem tákn um faglega ábyrgð og leiðarljós í starfi.

Þroskaþjálfafélag Íslands var stofnað árið 1965 og telur í dag um 800 félagsmenn. Félagið gegnir mikilvægu hlutverki sem fag- og stéttarfélag og sinnir fjölbreyttu starfi á sviði fræðslu, fagþróunar og hagsmunagæslu. Þar má nefna starf fagráðs, nefnda og trúnaðarmannaráðs sem tekur þátt í gerð kjarasamninga og stuðlar að bættum starfsskilyrðum félagsmanna.

Í lok ávarpsins voru nýir þroskaþjálfar hvattir til að vera stoltir af faginu og þeirri ábyrgð sem því fylgir. Fagmennska, virðing og skuldbinding við réttindi fatlaðs fólks voru dregin fram sem lykilgildi í starfi þroskaþjálfa.

Að lokinni athöfn var boðið upp á veitingar þar sem útskriftarnemar, fjölskyldur þeirra og aðrir gestir fögnuðu þessum merka áfanga saman.

Með því aið smella á myndina má sjá fleiri myndir frá athöfninni

.