Sérfræðingur í farteymi
Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir að ráða til starfa sérfræðing í farteymi skólaþjónustu. Um tvær tímabundnar stöður er að ræða í 100% starfshlutfalli þar sem unnið er í dagvinnu. Ráðið er í störfin til tveggja ára frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi.
Farteymi skólaþjónustu er nýtt tilraunverkefni til tveggja ára með það að markmiði að veita tímabundinn, markvissan og þverfaglegan stuðning inn í leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar þegar önnur úrræði eru fullreynd. Sérfræðingar farteymis starfa að mestu inni í skólaumhverfinu, vinna með börnum, styðja við starfsfólk og innleiðingu inngripa sem bæta námsumhverfi, öryggi, líðan og virkni.
elstu verkefni eru:
- Greinir og metur stöðu og þarfir barna í skóla.
- Vinnur tímabundið í nánu samstarfi við starfsfólk og börn í skólaaðstæðum.
- Vinnur með og styður við starfsfólk skóla við aðlögun náms, kennsluhátta og skipulags.
- Setur fram áætlanir og daglega ferla í samstarfi við starfsfólk skóla.
- Samþætting verkefna og þróunarvinna á fræðslu- og lýðheilsusviði.
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á svið/stofnanir.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BS/BA/B.Ed).
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Farsæl og nýleg reynsla af vinnu með börnum sem þurfa sérhæfðan stuðning.
- Farsæl og nýleg reynsla við ráðgjöf á sviði málefna barna.
- Haldbær þekking á hegðunarerfiðleikum, tilfinningavanda og þroskafrávikum.
- Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við börn.
- Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Áhugi og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfinu. Mikilvægt er að einnig komi fram hugmyndir umsækjenda og sýn á starfið.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Vilhjálmsdóttir, forstöðumaður skólaþjónustu í síma 460-1455 og á netfangi helgav@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum sjá nánar hér
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2026
