Ráðgjafi barna og fjölskyldna

Viltu taka þátt í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna?

Á velferðarsviði Kópavogs stendur yfir innleiðing á nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í samstarfi við menntasvið. Velferðarsvið leitar að öflugum ráðgjafa til að sinna málsstjórn og stýra þjónustu til barna og fjölskyldna sem hafa þörf fyrir samþætta þjónustu á 2. stigi. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og spennandi starf í umhverfi sem reynir á framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni


Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Málstjórn samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
  • Veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barna á 1., 2. og 3. stigi þjónustu til barna, foreldra og annarra aðila og stofnana
  • Greining á þjónustuþörfum barna og fjölskyldna þeirra
  • Gerð og eftirfylgd stuðningsáætlana og mat á árangri
  • Halda utan um lykiltölur og verkferla sem snúa að þjónustunni
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi innan sveitarfélagsins og utan þess

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi eða starfsréttindi frá Landlækni er skilyrði, s.s. í félagsráðgjöf eða þroskaþjálfun
  • Reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum er kostur
  • Þekking á lagaumhverfi og stjórnsýslu sveitarfélaga er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og lausnamiðuð nálgun
  • Metnaður frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
Fríðindi í starfi

Frítt í sund í Kópavogi