Málastjóri - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir einstaklinga sem eru 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og /eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins eru jafnframt oft með fjölbreyttan taugaþroska og aðra sjúkdóma, svo sem einhverfu. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu innan teymisins og náið samstarf þvert á heilbrigðis- og velferðarþjónustu um land allt.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu, þar sem teymisvinna, fagmennska og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.
Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu teymi þar sem þverfagleg samvinna og fagleg þróun eru lykilþættir. Ef þú hefur áhuga á að sinna mikilvægu og áhrifaríku starfi með fjölbreyttum hópi skjólstæðinga, þá er þetta rétta tækifærið.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Málastjórn og meðferðarvinna
-
Gerð meðferðaáætlana, endurmat og eftirfylgd
-
Umsjón og heildarsýn yfir meðferð og úrræði notendahóps
-
Ráðgjöf og fræðsla til notenda og aðstandenda
-
Skipuleggur og veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og fræðslu til þjónustuveitanda
-
Þátttakandi í þverfaglegu teymi
-
Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi
Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu á landsvísu, geðsviðs Landspítala, annarra stofnana og samtaka.
Hæfniskröfur
-
Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
-
Hagnýt starfsreynsla a.m.k. 3 ár
-
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
-
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
-
Þekking á skipulögðum vinnubrögðum (TEACCH)
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Íslenskukunnátta skilyrði
-
Hæfni og áhugi á teymis-og verkefnavinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bjargey Una Hinriksdóttir
Fagstjóri geðheilsuteymis taugaþroskaraskana
Tölvupóstur: bjargey.una.hinriksdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6750
Valgerður Bára Bárðardóttir
Geðhjúkrunarfræðingur
Tölvupóstur: valgerdur.bara.bardardottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6750
