Vissir þú?

Að fyrsta skrefið til að stytta vinnuvikuna í dagvinnu er að stofna vinnutímanefnd sem annast undirbúning breytinga og leiðir samtalið á vinnustaðnum? Fulltrúar starfsfólks og stjórnendur velja fólk í vinnutímanefndir sem endurspegla vinnustaðinn og ólíka hópa og vinnufyrirkomulag innan hans.
Tryggja skal að öll heildarsamtök launafólks eigi að minnsta kosti einn fulltrúa í nefndinni, ASÍ, BHM, BSRB, FL og/eða FSL, að því gefnu að starfsmenn séu félagsmenn í aðildarfélögum þessara heildarsamtaka.
Nánari upplýsingar um ferlið má finna hér:https://betrivinnutimi.is/verkfaerakista/