Undirritun á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Þroskaþjálfafélags Íslands og Reykjavíkurborgar.

Samkomulagið var undirritað með rafrænum hætti með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Kynning á samkomulagi um breytingar og framlengingu á kjarasamningi ÞÍ og Reykjavíkurborgar fer fram mánudaginn 22. maí klukkan 15:30

Kosning hefst 19. maí klukkan 12, til að kjósa skal fara inn á kosningasíðu – www.bhm.is/kosning og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Þroskaþjálfar sem starfa hjá Reykjavík hafa fengið sendan tölvupóst með fundarboði ásamt samkomulaginu.

Hvetjum öll sem eiga aðild að samningi að kjósa

Kosningu lýkur klukkan 11:00 föstudaginn 26. maí.