Þroskaþjálfafélag Íslands undirritaði heildarkjarasamning við Ás styrktarfélag.

Í dag undirritaði Þroskaþjálfafélag Íslands nýjan heildarkjarasamning við Ás styrktarfélag. 

Nýr kjarasamningur gildir frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum sem starfa hjá Ási styrktarfélagi á næstu dögum og rafræn kosning fer fram í kjölfarið. Félagsmenn Áss styrktarfélags hafa fengið samninginn sendan.